
Rafhlaðan hlaðin
1. Stingdu hleðslutækinu í samband við innstungu.
2. Tengdu hleðslutækið við tækið. Ef rafhlaðan er alveg tóm
gæti liðið einhver tími þar til hleðsluvísirinn byrjar að
hreyfast.
3. Þegar rafhlaðan er fullhlaðin skaltu fyrst taka
hleðslutækið úr sambandi við tækið og síðan úr
innstungunni.
Rafhlaðan hefur þegar verið hlaðin í verksmiðjunni, en ekki
er víst að hún sé fullhlaðin. Til að hámarka notkunartíma
tækisins skaltu hlaða rafhlöðuna að fullu (hleðslustaðan sést
á hleðsluvísinum).
Ábending: Þú getur notað eldri gerðir Nokia
hleðslutækja með tækinu þínu með því að tengja CA-44
millistykkið við gamla hleðslutækið. Millistykkið er
fáanlegt sem aðskilinn aukahlutur.