Við þráðlaus staðarnet
Mikilvægt: Alltaf skal virkja eina af tiltækum
dulkóðunaraðferðum til að auka öryggi þráðlausrar
staðarnetstengingar. Notkun dulkóðunar dregur úr hættunni
á því að einhver fái aðgang að gögnunum þínum án
heimildar.
Til að nota WLAN þarf að búa til netaðgangsstað.
Aðgangsstaðurinn er notaður fyrir forrit sem þurfa að
tengjast við internetið. Tengingu við WLAN er komið á þegar
þú býrð til gagnatengingu með WLAN-aðgangsstað. Þegar þú
lokar gagnatengingunni er þráðlausu staðarnetstengingunni
einnig lokað. Einnig er hægt að loka tengingunni handvirkt.
Sjá „Stjórnandi tenginga“, bls. 100.
Hægt er að nota þráðlaust staðarnet meðan á símtali stendur
eða meðan pakkagagnatenging er virk. Aðeins er hægt að
tengjast við eitt tæki fyrir WLAN-aðgangsstað í einu en
nokkur forrit geta notað sama netaðgangsstaðinn.
Hægt er að nota WLAN þó svo að ótengda sniðið sé í notkun.
Mundu að uppfylla allar viðeigandi öryggiskröfur þegar
þráðlausu staðarnetssambandi er komið á og það er notað.
Ef þú færir tækið til innan WLAN og úr færi við aðgangsstað
þess finnur reikiaðgerðin sjálfkrafa nýjan aðgangstað fyrir
tækið þitt innan sama nets. Á meðan þú ert í færi við
aðgangsstaði sem tilheyra sama neti getur tækið þitt haldið
tengingunni við það net.
Ábending: Til að kanna MAC-vistfang (media access
control) sem ber kennsl á tækið þitt, t.d. til að stilla
MAC-vistfang tækisins þíns á beini fyrir þráðlaust
staðarnet, skaltu slá inn *#62209526# í tækið. MAC-
vistfangið sést á skjánum.