
Kveikt í fyrsta skipti
1. Haltu rofanum inni þar til þú finnur
tækið titra.
2. Ef beðið er um það skaltu slá inn
PIN-númerið eða læsingarnúmerið
og velja
Í lagi
.
3. Ef beðið er um það skaltu slá inn borgina þar sem þú ert
staddur/stödd ásamt tímanum og dagsetningunni. Sláðu
inn fyrstu stafina í nafni landsins til að velja það. Mikilvægt
er að velja rétt land þar sem tímasett dagbókaratriði geta
breyst ef þú breytir landi síðar meir og nýja landið er í
öðru tímabelti.
4. Forritið Velkomin/n opnast. Veldu á milli valkostanna, eða
lokaðu forritinu með því að velja
Hætta
.
Notaðu hjálparforritin sem eru tiltæk á heimaskjánum og
stillingarforritið til að velja stillingar tækisins. Þegar kveikt er
á tækinu kann það að bera kennsl á símafyrirtæki SIM-
kortsins og velja einhverjar stillingar sjálfkrafa. Þú getur
einnig fengið réttar stillingar hjá þjónustuveitunni þinni.
Hægt er að kveikja á tækinu án þess að SIM-kort sé í tækinu.
Tækið ræsir sig í sniði án tengingar og ekki er hægt að nota
þær símaaðgerðir þar sem tenging við símkerfið er
nauðsynleg.
Slökkt er á tækinu með því að halda inni rofanum.