
Spilun lags eða netvarpsþáttar
Til að bæta öllum tiltækum lögum og netvörpum við
tónlistarsafn velurðu
Valkostir
>
Uppfæra
.
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
76

Lag eða netvarpsþáttur er spilaður með því að velja
Tónlist
eða
Netvörp
og viðeigandi flokk, síðan er flett að lagi eða
netvarpsþætti og ýtt á skruntakkann.
Hljóðstyrkurinn er stilltur með því að fletta upp eða niður.
Hlé er gert á spilun með því að ýta á skruntakkann og henni
er haldið áfram með því að ýta á takkann aftur. Spilun er
stöðvuð með því að fletta niður.
Skruntakkanum er ýtt til vinstri eða hægri og haldið inni til
að spóla áfram eða til baka.
Farið er í næsta hlut með því að fletta til hægri. Farið er í
upphaf hlutarins með því að fletta til vinstri. Til að hoppa yfir
í fyrri hlutinn flettirðu aftur til vinstri innan 2 sekúndna eftir
að lag eða netvarp hefst.
Til að fara aftur á heimaskjáinn og láta spilarann vera í gangi
í bakgrunninum skaltu ýta á endatakkann.