
Hlustað á netútvarpsstöðvar.
Viðvörun: Hlusta skal á tónlist með hæfilegum
hljóðstyrk. Sé hún hátt stillt í langan tíma getur það valdið
heyrnarskaða. Ekki halda tækinu nálægt eyranu þegar kveikt
er á hátalaranum. Hljóðstyrkurinn kann að vera mjög mikill.
Hægt er að hlusta á útvarpsstöð á netinu með því að velja
stöð af stöðvalistanum, leita að stöð eftir nafni í
netútvarpsþjónustu Nokia eða velja
Valkostir
>
Bæta
handvirkt við stöð
. Þegar þú hefur fundið rétta stöð velurðu
Hlusta
.
Ýttu á skruntakkann til að hætta spilun. Ýttu aftur á
skruntakkann til að halda spiluninni áfram.
Haltu virknitakkanum inni og flettu upp eða niður til að stilla
hljóðstyrkinn.
Til að birta upplýsingar um stöð skaltu velja
Valkostir
>
Um
stöð
(ekki hægt ef stöðin hefur verið vistuð handvirkt).
Ef þú ert að hlusta á stöð sem er vistuð í eftirlætishlutunum
skaltu skruna til vinstri eða hægri ef þú vilt hlusta á fyrri eða
næstu stöð sem hefur verið vistuð.
Ábending: Þú getur leitað að stöðvatenglum með
vefforritinu. Samhæfir tenglar opnast sjálfvirkt í
netútvarpsforritinu.