Nokia E63 - Myndataka

background image

Myndataka

Tækið styður allt að 1600x1200 punkta myndupplausn við

myndatöku. Myndupplausnin í þessari handbók getur virst

önnur.
Notaðu skjáinn sem myndglugga til að taka mynd, beindu

myndavélinni að myndefninu og ýttu á skruntakkann. Tækið

vistar myndina í Gallerí möppunni eða í möppu sem þú hefur

valið.

Ábending: Mynd er stækkuð eða minnkuð áður en

hún er tekin með því að fletta upp eða niður.

Ef þú vilt ekki vista myndina sem þú tókst skaltu velja

Valkostir

>

Eyða

. Veldu

Til baka

til að fara aftur í

myndgluggann og taka aðra mynd. Veldu

Valkostir

>

Opna

Gallerí

til að skoða myndina í Galleríinu.

Veldu

Valkostir

>

Leifturljós

til að nota alltaf flass, til að

nota það aldrei eða til að nota það sjálfkrafa í samræmi við

birtuskilyrði hverju sinni.
Ef birtan er lítil skaltu velja

Valkostir

>

Næturstilling

>

Kveikt

áður en mynd er tekin.

Til að stilla myndgæðin velurðu

Valkostir

>

Stilla

>

Ljósgjafi

eða

Litáferð

.

Til þess að taka nokkrar myndir í röð velurðu

Valkostir

>

Myndaröð

. Myndavélin tekur þá sex myndir í röð.

Fyrir tímastillta myndatöku velurðu

Valkostir

>

Sjálfvirk

myndataka

, og svo tímann. Myndavélin tekur mynd eftir að

tíminn er liðinn.

Ábending: Til að fá aðgang að ýmsum

myndavélarstillingum með fljótlegum hætti velurðu

Valkostir

>

Sýna tækjastiku

.

Til að skoða myndir skaltu velja

Valmynd

>

Miðlar

>

Gallerí

>

Myndir

.