Um gervihnattamerki
Ef tækið finnur ekki gervihnattamerki gættu þá að
eftirfarandi atriðum:
• Sértu innanhúss skaltu fara út til að ná betra merki.
• Sértu úti skaltu fara á opnara svæði.
• Slæm veðurskilyrði geta haft áhrif á sendistyrkinn.
• Það getur tekið allt frá fáeinum sekúndum upp í nokkrar
mínútur að koma á GPS-tengingu.
Staða gervitungla
Til að athuga hvað tækið þitt fann mörg gervitungl og hvort
það tekur á móti gervihnattamerkjum, skaltu velja
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
66
Valmynd
>
Verkfæri
>
GPS-gögn
>
Staða
>
Valkostir
>
Staða gervitungla
. Ef tækið hefur fundið gervihnött birtist
stika fyrir hvern þeirra á upplýsingaskjá gervihnatta. Því
lengri sem stikan er, því meiri er sendistyrkur
gervihnattarins. Þegar tækið hefur fengið næg gögn frá
gervitunglinu til að reikna hnit staðsetningarinnar verður
stikan svört.
Tækið verður í upphafi að fá merki frá a.m.k. fjórum
gervitunglum til að geta reiknað hnit staðsetningar þinnar.
Þegar frumútreikningur hefur farið fram kann það að vera
mögulegt að reikna út hnit fyrir staðsetningu þína með
þremur gervitunglum. Hins vegar er útreikningurinn
nákvæmari þegar fleiri gervitungl finnast.