Vísar á skjá
GPS-vísirinn
neðst í hægra horni skjásins sýnir
styrk merkis frá gervitungli. Eitt strik er eitt gervitungl. Á
meðan tækið leitar að gervitungli er strikið gult. Þegar tækið
móttekur næg gögn frá gervitunglinu til að koma á GPS-
tengingu verður strikið grænt. GPS-tengingin verður sterkari
eftir því sem grænu strikin eru fleiri.
Tækið verður í upphafi að fá merki frá a.m.k. fjórum
gervitunglum til að geta reiknað hnit staðsetningar þinnar.
Eftir að frumútreikningur hefur farið fram er hugsanlegt að
merki frá þremur gervitunglum sé nóg.
Gagnaflutningsvísirinn
sýnir
internettenginguna og magn fluttra gagna síðan forritið var
ræst.
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
68