Nokia E63 - Færst til á korti

background image

Færst til á korti

Umfang korta er mismunandi eftir löndum og svæðum.
Þegar þú opnar kortaforritið birtist höfuðborg landsins sem

þú ert í, eða staðsetningin sem var vistuð síðast þegar það

var notað. Korti af staðsetningunni er einnig hlaðið niður ef

þörf krefur.
Til að stækka GPS-staðsetninguna þína eða síðustu skráðu

staðsetningu ýtirðu á aðgerðahnappinn og 0.

Þegar GPS-tengingin er virk sýnir

staðsetningu þína á

kortinu.
Flettu upp, niður, til vinstri eða hægri með skruntakkanum til

að færa þig um kortið. Sjálfgefið er að stefna kortsins sé í

norður.
Til að auka og minnka aðdrátt á kortið ýtirðu á

aðgerðahnappinn og *, eða aðgerðahnappinn og #.
Þegar kortið er skoðað á skjánum er nýju korti hlaðið

sjálfkrafa niður ef farið er inn á svæði sem ekki er á kortunum

sem búið er að hlaða niður. Kortin eru ókeypis en niðurhal

getur falið í sér stórar gagnasendingar um farsímakerfi

þjónustuveitunnar. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar

um gagnaflutningsgjöld. Kortin eru sjálfkrafa vistuð í minni

tækisins eða á samhæfu minniskorti (ef slíkt kort er í tækinu).