Útskýringar
Útskýringar
3G
Þriðju kynslóðar farsímakerfi. Stafrænt
kerfi fyrir farsíma sem miðar að hnattrænni
notkun og veitir aukna bandvídd. Með 3G
fær notandi fjarskiptabúnaðar aðgang að
margs konar þjónustu, líkt og margmiðlun.
Beintenging
(ad-hoc)
Þráðlaus staðarnet (WLAN) þar sem tvö eða
fleiri tæki tengjast við hvert annað um
WLAN án aðgangsstaðar.
Fótspor
Fótspor eru upplýsingabútar sem miðlarinn
gefur notanda til að geyma upplýsingar um
heimsóknir á vefsvæði. Þegar tekið er við
fótsporum getur miðlarinn metið notkun
viðkomandi á vefsvæðinu, áhugasvið
notanda, lestrarsmekk o.s.frv.
DNS
Þjónusta lénsheita. Internetþjónusta sem
þýðir lénsheiti, eins og www.nokia.com,
yfir í IP-tölur líkt og 192.100.124.195. Það
er auðveldara að muna lénsheiti en þar sem
internetið byggist á IP-númerum er þessi
þýðing nauðsynleg.
DTMF-tónar
DTMF-tónastrengir (Dual Tone
Multifrequency). Tónvalssímar nota DTMF-
kerfið. DTMF úthlutar hverjum takka
tilgreinda tíðni, eða tón, svo að
örtölvuverkið geti auðveldlega borið kennsl
á hann. Með DTMF-tónum er hægt að eiga
samskipti við talhólf, tölvustýrð símkerfi og
svo framvegis.
EAP
EAP (Extensible authentication protocol).
EAP-viðbætur eru notaðar fyrir sannvottun
á milli þráðlausra tækja og
sannvottunarmiðlara á þráðlausum netum.
EGPRS
Þróað GPRS. EGPRS svipar til GPRS en býður
upp á enn hraðari tengingu. Upplýsingar
um framboð og gagnaflutningshraða fást
hjá þjónustuveitunni.
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
124
GPRS
GPRS (General packet radio service). GPRS
gerir farsímum kleift að tengjast
gagnanetum með þráðlausri tengingu
(sérþjónusta). GPRS notast við
pakkagagnatækni þar sem upplýsingar eru
sendar í stuttum gagnakippum um
farsímakerfið. Kosturinn við að senda gögn
í pökkum er að símkerfið er aðeins upptekið
þegar gögn eru send eða móttekin. Þar sem
GPRS notast við símkerfið á skilvirkan hátt
gerir það kleift bæði að setja
gagnatengingar upp hratt og mikinn hraða
gagnaflutninga.
Þú verður að vera í áskrift að GPRS-
þjónustunni. Nánari upplýsingar um
framboð og áskrift að GPRS fást hjá
þjónustuveitunni.
Meðan á símtali venjulegu stendur er ekki
hægt að koma á GPRS-tengingu og allar
virkar GPRS-tengingar eru settar í bið, nema
að símkerfið styðji tvöfaldan
gagnaflutning.
GPS
Global positioning system. GPS er þráðlaust
leiðsagnarkerfi sem nær yfir allan hnöttinn.
HTTP
HTTP (Hypertext transfer protocol).
Samskiptareglur fyrir skjöl sem notaðar eru
á vefnum.
HTTPS
HTTP um örugga tengingu.
IMAP4
IMAP4 (Internet mail access protocol),
útgáfa 4. Samskiptareglur sem eru notaðar
til að fá aðgang að ytra pósthólfi.
Internetaðgan
gsstaður
Aðgangsstaður er staðurinn þar sem tækið
tengist við netkerfi. Áður en hægt er að nota
tölvupóst og margmiðlunarþjónustu eða
tengjast við internetið og opna vefsíður
verður að tilgreina aðgangsstaði fyrir þessa
þjónustu.
Grunnnet
Þráðlaust staðarnet (WLAN) þar sem tæki
eru tengd við WLAN um aðgangsstað.
PIN
Personal identity number. PIN-númerið ver
tækið þitt fyrir óleyfilegri notkun. PIN-
númerið fylgir með SIM-kortinu. Ef beiðni
um PIN-númer er valin þarf að gefa upp
númerið í hvert skipti sem kveikt er á
tækinu. PIN-númerið verður að vera 4 til 8
tölustafir.
PIN2
PIN2-númerið fylgir með sumum SIM-
kortum. Gefa þarf upp PIN2-númerið til að
fá aðgang að ákveðnum aðgerðum sem
SIM-kortið styður. Lengd PIN2-númersins er
4 til 8 tölustafir.
POP3
POP3 (Post office protocol), útgáfa 3.
Staðlaðar póstsamskiptareglur sem hægt
er að nota til að fá aðgang að fjartengdu
pósthólfi.
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
125
PUK og PUK2 PUK-númer (Personal Unblocking Key). PUK-
og PUK2 númer eru nauðsynleg til að breyta
lokuðu PIN-eða PIN2-númeri. Númerið er
átta stafir.
SIP
Session Initiation Protocol. SIP-reglur eru
notaðar til að koma á, breyta og slíta vissum
tegundum samskipta við einn eða fleiri
þátttakendur.
SSID
SSID (Service set identifier). SSID er heiti
sem auðkennir tiltekið WLAN.
Straumspilun Í straumspilun eru skrár spilaðar beint af
internetinu án þess að þeim sé fyrst hlaðið
niður í tækið.
UMTS
UMTS-farsímakefi (Universal mobile
telecommunications system). UMTS er
þriðju kynslóðar farsímakerfi. Auk símtala
og gagnasendinga er einnig hægt að senda
hljóð- og hreyfimyndir til þráðlausra tækja
um UMTS-farsímakerfi.
Þegar tækið er notað í GSM- og UMTS-
símkerfum er hægt að hafa margar
gagnatengingar í gangi samtímis og
aðgangsstaðir geta deilt gagnatengingu. Í
UMTS-símkerfinu er ekki slökkt á
gagnatengingu þegar símtal er í gangi. Til
dæmis er hægt að skoða vefsíður með meiri
hraða en áður var mögulegt um leið og
talað er í símann.
UPIN
PIN-númer notað í UMTS-símkerfi.
UPUK
UPIN opnunarnúmer. UPUK-númer er
nauðsynlegt til að breyta lokuðu UPIN- eða
PIN2 númeri. Númerið er átta stafir.
USIM
SIM-kort notað í UMTS-símkerfi.
USSD-skipun
Þjónustubeiðni, eins og beiðni um að ræsa
forrit eða breyta ýmsum stillingum utan frá,
sem hægt er að senda símafyrirtækinu eða
þjónustuveitunni með tækinu.
Netsímtöl
(VoIP)
Talsími yfir internet VoIP eru
samskiptareglur sem auðvelda símtöl yfir
IP-net, eins og internetið.
VPN
VPN (Virtual private network). VPN kemur á
öruggri tengingu við samhæft innra net
fyrirtækja og þjónustu, eins og t.d.
tölvupóst.
WAP
Wireless application protocol. WAP er
alþjóðlegur staðall fyrir þráðlaus samskipti.
WEP
WEP (Wired equivalent privacy). WEP er
dulkóðunaraðferð sem dulkóðar gögn áður
en þau eru send á þráðlausu neti.
WLAN
Þráðlaust staðarnet.
WPA
Wi-Fi varinn aðgangur. Öryggisaðferð fyrir
WLAN.
WPA2
Wi-Fi varinn aðgangur 2. Öryggisaðferð
fyrir WLAN.
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
126