Traustsstillingar vottorða
Það að vottorði sé treyst þýðir að þú heimilar því að sannvotta
vefsíður, póstþjóna, hugbúnaðarpakka og önnur gögn. Nota
verður áreiðanleg vottorð til að sannvotta þjónustu og
hugbúnað.
Mikilvægt: Þó að notkun vottorða dragi verulega úr
þeirri áhættu sem fylgir fjartengingum og uppsetningu
hugbúnaðar verður að nota þau rétt svo að aukið öryggi fáist.
Tilvist vottorðs er engin vörn ein og sér. Vottorðastjórinn
verður að vera með rétt, sannvottuð eða tryggileg vottorð
svo að aukið öryggi fáist. Vottorð eru bundin tilteknum tíma.
Ef textinn „Útrunnið vottorð“ eða „Vottorðið hefur enn ekki
tekið gildi“ birtist þó svo að vottorðið ætti að vera gilt skal
athuga hvort rétt dag- og tímasetning sé í tækinu.
Áður en vottorðsstillingum er breytt þarf að ganga úr skugga
um að örugglega megi treysta eiganda þess og að það tilheyri
í raun eigandanum sem tilgreindur er.
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
104
Til að breyta traustsstillingum velurðu vottorð og
Valkostir
>
Trauststillingar
. Veldu forritasvæði og ýttu á
skruntakkann til að velja
Já
eða
Nei
. Ekki er hægt að breyta
traustsstillingum einkavottorðs.
Allt eftir því hvaða vottorð er valið birtist listi yfir forritin sem
geta notað það:
•
Symbian-uppsetning
— Nýtt forrit fyrir Symbian
stýrikerfi.
•
Internet
— Tölvupóstur og grafík.
•
Uppsetning forrita
— Nýtt Java™ forrit.
•
Könnun vott. á Neti
— Online certificate status protocol.