
Samstilling gagna
Veldu
Valmynd
>
Verkfæri
>
Samstilling
.
Notaðu samstillingu til að samstilla tengiliði,
dagbókarfærslur eða minnismiða við samsvarandi forrit á
samhæfri tölvu eða ytri netþjóni. Stillingarnar fyrir
samstillingu eru vistaðar í samstillingarsniði.
Samstillingarforritið notar SyncML-tækni við fjartengda
samstillingu. Frekari upplýsingar um SyncML-samhæfni fást
hjá söluaðila forritanna sem samstilla á tækið við.
Þú getur einnig fengið stillingar fyrir samstillinguna sendar
sem skilaboð frá þjónustuveitunni. Mismunandi getur verið
hvaða forrit er hægt að samstilla. Þjónustuveitan gefur
nánari upplýsingar.
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
108