Laust minni
Hægt er að sjá hversu mikið minni er í notkun, hversu mikið
minni er laust og hversu mikið minni hver gagnagerð notar
með því að velja
Valmynd
>
Valkostir
>
Uppl. um
minni
>
Minni símans
eða
Minniskort
.
Ábending: Til að ganga úr skugga um að þú hafir nægt
minni skaltu flytja gögn reglulega yfir á minniskort eða
í tölvu, eða nota skráarstjórann til að eyða skrám sem
þú þarft ekki lengur á að halda.
Uppsetningarskrár (.sis, .sisx) eru áfram í minni tækisins eftir
að forrit þeirra hafa verið sett upp á samhæfu minniskorti.
Skrárnar geta tekið mikið minni og valdið því að ekki sé hægt
að vista aðrar skrár. Til að losa um minni skaltu nota Nokia
PC Suite til að taka öryggisafrit af uppsetningarskrám og setja
afritið á samhæfa tölvu. Að því loknu skaltu nota
Skráarstjórann til að eyða uppsetningarskránum úr minni
tækisins. Ef .sis-skráin hefur verið send sem viðhengi í
skilaboðum skal eyða skilaboðunum úr innhólfinu.
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
101